Hlutverk okkar er framleiðsla og markaðssetning umbúða til flutnings á ferskum matvælum og framleiðsla og markaðssetning einangrunarplasts til
byggingarframkvæmda.
Fyrirtækið leggur áherslu á að veita hraða og örugga þjónustu, hafa ávallt á boðstólnum vöru að jöfnum gæðum sem uppfyllir þau skilyrði sem til hennar eru gerð, er meðvitað um lykilstöðu sína á markaði og þá ábyrgð sem henni fylgir og leggur metnað sinn í að vera fremst á sínu sviði á Íslandi.
Lögð er áhersla á vöxt og arðsaman rekstur með því að ráða hæft og traust starfsfólk sem hefur áhuga og hvata til þess að veita viðskiptavinum sínum og þjóðfélaginu sem besta þjónustu.
Aðalmarkmið:

- Nýta og efla þekkingu starfsmanna
- Veita framúrskarandi þjónustu
- Vera leiðandi í vöruþróun
- Vöxtur og arðsamur rekstur
- Uppfylla þarfir viðskiptavinarins með áherslu á gæði og sveigjanleika í framleiðslu
- Ábyrg sjálfstæð og öguð vinnubrögð byggð á markmiðasetningu og árangursmati
- Virkjun á hugmyndaauðgi og notkun óhefðbundinnna leiða við lausn vandamála
- Stefna markvisst að hámörkun tæknilegrar getu