Allir hjá Tempru eru ábyrgir fyrir eigin öryggi og fyrir öryggi annarra sem störf þeirra hafa áhrif á. Örugg vinnubrögð eru skilyrði þess að vinna hjá Tempru.
Stjórnendur munu ganga á undan með góðu fordæmi og hafa heilsu og öryggi í fyrirrúmi. Sérhver starfsmaður er ábyrgur fyrir eigin heilsu og öryggi. Framganga okkar á að vera öðrum jákvæð fyrirmynd.
Hvarvetna í fyrirtækinu kappkostum við að bæta sífellt öryggi tækjabúnaðar okkar, vinnuumhverfi og heilsueflingu starfsfólks okkar á vinnustað með því að fá starfsfólk til að taka þátt, þjálfa það á viðeigandi hátt og hvetja það áfram við að þróa menningu heilbrigðis og öryggis innan Tempru.
Allt starfsfólk Tempru tekur virkan þátt í að koma auga á mögulegar hættur. Þær hættur tökum við alvarlega, metum þær, förum með þær sem forgangsatriði og útrýmum þeim þar sem hægt er. Sé ekki hægt að útrýma þeim grípum við til viðeigandi ráðstafana til að hamla gegn þeim. Til að efla frekar andrúmsloft sífelldra framfara hefur starfsfólk okkar aðkomu á öllum stigum ferlisins.
Viðmið okkar og skilyrði um hegðun og frammistöðu á sviði heilsu og öryggis gilda jafnt um verktaka og starfsfólk Tempru. Við tryggjum að verktakar okkar beri skynbragð á kerfi okkar og verklagsreglur og fylgi þeim í hvívetna.
Við rannsökum rækilega atvik og hugsanlega hættulega atburði. Við komumst að niðurstöðu um frumorsakir og grípum hratt og örugglega til aðgerða til að koma í veg fyrir endurtekningu. Allir hjá Tempru eru hvattir til að deila góðum starfsháttum, taka þá upp og læra af reynslu annarra.
Við höldum áfram þróun kerfa til að mæla frammistöðu og deilum niðurstöðunum með samstarfsaðilum okkar sem munu kappkosta að ýta á jákvæðan hátt undir framfarir.
Með reglulegu millibili gerum við ítarlega úttekt á starfsemi okkar með öryggiskerfi okkar og hegðun í brennipunkti og nýtum þann auð sérþekkingar sem samstæðan og aðilar utan hennar búa yfir. Með því að draga fram dæmi um framúrskarandi árangur og fella þau inn í starfsemi okkar um gjörvalla samstæðuna, kappkostum við að bæta almennt gæði frammistöðunnar í heilsu- og öryggismálum.
Útgefið 03.05.2023
Magnús Bollason, framkvæmdastjóri