Ágæti viðskiptavinur,
Tempra ehf hefur flutt inn og selt plastvörubretti frá 2010. Einnig eru þau seld undir öllum frauðplast umbúðavörum sem Tempra framleiðir.
Tempra ehf hefur hingað til tekið til baka bretti á sama verði og þau voru seld á. Það krefst vinnu að taka á móti og yfirfara ástand þeirra og vegna þeirra vinnu munu ónýt eða óhrein bretti ekki fást kreditfærð.
Hér að neðan eru lýsing á því ferli sem starfsmenn Tempru hafa sett upp til þess að halda utan um brettaskil:
https://www.tempra.is/is/vorurnar/umbudir/bretti
Þegar viðskiptavinur hefur sent beiðnina fer hún beint inn til afgreiðslu Tempru og viðskiptavinurinn fær staðfestingu þess efnis að beiðnin hafi verið mótttekin.
Berist bretti til Tempru án tilkynningar eða beiðni frá viðskiptavini þá ber Tempra ekki ábyrgð á því að kreditreikningur berist viðskiptavini.
f.h. Tempru ehf,
Björn Sverrisson sölu og markaðsstjóri